HEIMASÍÐAN MÍN

hvað er að gerast hér!!!

þriðjudagur, ágúst 19, 2003

Góðann Daginn!!!!
Hvað er nú að frétta. Það er lítið búið að gerast hjá mér. ÉG hitti reyndar Völlu vinkonu í Kringlunni í gær í hádeginu mínu! Við fengum okkur súpu og gátum þá blaðrað og blaðrað um þá gömlu góðu daga! Við höfum ekki sést í 5 ár þannig að það var um nóg að tala. Núna er ég komin með símann hennar þannig að núna verð ég að halda sambandinu við hana!
Mamma fór í aðgerð í gær. Hún þurfti að láta laga liðþófann í hnénu! Hún fór í aðgerð kl.10oo og var komin heim um kl: 15oo. Þetta gekk nú bara allt vel. Ég fór til hennar í gærkvöldi og hjálpaði henni aðeins með að fá vatn og svona inn til sín. Svo í morgunn fór ég og lánaði henni nokkrar danskar bækur og blöð!
Jæja vonandi gerist nú eitthvað skemmtilegt þangað til næst!!!
Kveðja Berglind